Forstöðumaður á Lautarvegi

Óskað er eftir forstöðumanni til starfa á heimili fólks með fötlun. Heimilið er íbúðarkjarni staðsettur á Lautarvegi 18 þar sem búa 6 íbúar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Umsóknafrestur er til 31. október, 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Að þjónusta og starfsemi sé í samræmi við lög, reglugerðir, stefnu og verkferla Áss styrktarfélags
· Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri heimilisins, stjórnun og starfsmannahaldi
· Að vinna eftir innri gæðaviðmiðum og kröfulýsingu heimilisins
· Einkafjármunir íbúa og hússjóður samkvæmt umboði
· Meðferð gagna og upplýsinga sé í samræmi við lög sem þeim tilheyra
· Innra faglegt starf og þjónusta við íbúa
· Að vinna einstaklingsmiðaðar þjónustuáætlanir með íbúum
· Samstarf við íbúa, aðstandendur og aðra samstarfsaðila

Hæfnikröfur:

· Menntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla
· Starfið krefst þekkingar á málefnum fatlaðs fólks og rík áhersla er lögð á hugmyndafræði og fagleg vinnubrögð
· Reynsla af starfsmannahaldi og stjórnun er nauðsynleg
· Góð samskiptafærni í töluðu og rituðu máli og sjálfstæð vinnubrögð
· Krefst tölvufærni ásamt góðrar íslensku og enskukunnáttu
· Frumkvæði, sjálfstæði og leiðtogafærni
· Hreint sakarvottorð

Umsækjandi þarf að geta tekið virkan þátt í innra starfi félagsins og haft stefnu þess og góða starfshætti að leiðarljósi. Starfið veitir tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum og spennandi verkefnum í samvinnu við góðan starfsmannahóp.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Hrönn Ásgeirsdóttir eða Þóra Þórarinsdóttir í síma 414-0500 á virkum dögum.
Atvinnuumsókn sendist á astah@styrktarfelag.is eða tora@styrktarfelag.is Upplýsingar um félagið má finna á www.styrktarfelag.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.

Ás styrktarfélag hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt ÍST 85:2012.