ÞÍ skrifar undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga

Samkomulag Þroskaþjálfafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritað í dag, 4. desember 2024, með fyrirvara um samþykki félagsfólks. Samkomulagið felur í sér framlengingu á gildandi kjarasamningi til fjögurra ára. Samningurinn byggir á þeim hækkunum sem samið var um á almennum markaði í byrjun árs og 36 stunda vinnuvika er fest í sessi.

 

Samningurinn gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 og er því með afturvirkni.

Samningurinn verður kynntur á tveimur fundum mánudaginn 9. desember. Annars vegar klukkan 10 og hins vegar klukkan 16. Þá verða allar upplýsingar, undirritað samkomulag og samstarfsnefndarfundargerð sendar á félagsfólk að kynningu lokinni. Atkvæðagreiðsla hefst á hádegi þann sama dag og lýkur föstudaginn 13. desember klukkan 11.

Allt félagsfólk starfandi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hefur nú þegar fengið sendan tölvupóst með upplýsingum um fundina.