Teymisstjóir meðferðarteyma á göngudeild barna- og unglingageðdeild
Við leitum að reyndum klínískum fagaðila til að leiða tvö stór þverfagleg meðferðarteymi á barna- og unglingageðdeild Landspítala. Í boði er fjölbreytt og líflegt starf og tækifæri til að öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins. Á deildinni er markvisst unnið að umbótum og framþróun. Margvísleg tækifæri eru til að dýpka þekkingu sína í greiningu og meðferð geðraskana barna og miklir möguleikar til starfsþróunar.
Um er að ræða fullt starf fyrir reyndan fagaðila, svo sem félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðing, sálfræðing, iðjuþjálfa eða þroskaþjálfa, sem hefur áhuga á að vera leiðtogi og að leiða gæðastarf ásamt því að brenna fyrir málefnum barna og unglinga með samsettan, fjölþættan vanda og fjölskyldna þeirra. Meðfram starfi teymisstjóra sinnir viðkomandi einnig klínískum verkefnum. Æskilegt að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Teymisstjóri meðferðarteyma er hluti af stjórnendateymi deildarinnar með yfirlækni, deildarstjóra hjúkrunar, deildarstjóra faghópa, fagstjórum annara faghópa og teymisstjórum stærri teyma á deildunum.
- Er faglegur leiðtogi sem vinnur í samráði við deildarstjóra, yfirlækni og aðra teymisstjóra að skipulagningu og starfsemi stóru meðferðarteymanna tveggja á göngudeild
- Er leiðandi í klínísku starfi og umbótastarfi sem styður við réttindi sjúklinga, öryggi, bætta þjónustu og framþróun í faginu
- Starfar í anda þess að starfsemin byggir á þverfaglegri samvinnu og liðsheild
- Stuðlar að stöðugu og jákvæðu starfsumhverfi og menningu sálræns öryggis
- Meðfram starfi sem teymisstjóri sinnir hann klínískum verkefnum á sinni starfseiningu og tekur virkan þátt í þverfaglegri teymisvinnu
- Hann skipuleggur og tekur þátt í rannsóknum, fræðslustarfi og starfsþjálfun eins og við á. Hann miðlar þekkingu og rannsóknarniðurstöðum í starfi sínu
- Önnur störf sem heyra undir starfsemi deildarinnar
- Íslenskt starfsleyfi sem sálfræðingur, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi eða þroskaþjálfi
- Sérfræðileyfi sem sálfræðingur, félagsráðgjafi eða hjúkrunarfræðingur er kostur
- Starfsreynsla sem klínískur fagaðili að því minnsta í 3 ár
- Reynsla af teymisstjórnun er kostur
- Brennandi áhugi á veitingu geðheilbrigðisþjónustu við börn og fjölskyldur
- Leiðtogahæfni og jákvætt hugarfar
- Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði
- Geta til að leiða umbótastarf og flókin klínísk verkefni
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli
- Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
- Hreint sakavottorð