Vorráðstefna RGR 2022, Börn með fatlanir - Virkni og velferð
Fyrsta vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (RGR) verður haldin 12. og 13. maí næstkomandi. Ráðstefnan byggir á áratugalangri hefð Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins (GRR) og mun standa í einn og hálfan dag en henni lýkur á hádegi föstudaginn 13. maí. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er: Börn með fatlanir - Virkni og velferð.
Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.
Aðstandendur ráðstefnunnar vonast til að samkomutakmarkanir muni heyra sögunni til á þessum tima og að fagfólk, sem sinnir fræðslu og umönnun barna með þroskaröskun og/eða fötlun, sem og aðstandendur muni hittast, fræðast og gleðjast saman á Hilton Nordica hótelinu í Reykjavík í vor.
Áfram verður boðið upp á streymi fyrir þátttakendur sem ekki eiga heimangengt.
Á ráðstefnunni verður virkni og velferð barna með fatlanir í brennidepli. Íþróttastarf fyrir fötluð börn verður kynnt og foreldrar segja frá sinni reynslu. Dr. Valgerður Jónsdóttir mun miðla af reynslu sinni af tónlistarkennslu fyrir börn með sérþarfir. Dr. Erla Björnsdóttir fjallar um mikilvægi svefns og svefnraskanir og Herdís I. Svandóttir kynnir atferlisíhlutun við svefnvanda. Tryggvi Helgason barnalæknir mun fjalla um áskoranir tengdar ofþyngd og hreyfingarleysi og Sigrún Þorsteinsdóttir kynnir doktorsverkefni sitt um bragðlaukaþjálfun sem meðferð við matvendni.
Covid-19 hefur nú í tvö ár haldið samfélaginu í heljargreipum og verða kynntar niðurstöður rannsóknar á áhrifum samkomutakmarkana á líðan barna með sérþarfir. Dr. Brynjar Halldórsson mun kynna foreldramiðaða meðferð við kvíða hjá 6-12 ára börnum. Eins og undanfarin ár verða málþroskaraskanir og áskoranir barna af erlendum uppruna til umfjöllunar. Kynnt verða ný fræðslumyndbönd fyrir fjölskyldur erlendra barna sem RGR hefur þróað og gerð grein fyrir niðurstöðum meistaraverkefnis í talmeinafræði um tengsl einhverfu og enskunnar.
Samþætting þjónustu fyrir börn sem byggir á nýjum farsældarlögum og nánara samstarfi þjónustukerfa verður til umfjöllunar. Soffía Lárusdóttir forstjóri mun kynna breytingar á lögum um RGR og breyttar áherslur í starfi stofnunarinnar og Hákon Sigursteinsson kynnir verkefnið Betri borg fyrir börn. Gerð verður grein fyrir niðurstöðum nýrrar rannsóknar á stuðningsþörfum mikið fatlaðra barna sem Langtímaeftirfylgd RGR stendur fyrir og foreldri mun lýsa sinni reynslu af kerfinu.
Þessi upptalning dagskrárliða er ekki tæmandi og er óskandi að dagskráin falli í góðan jarðveg.
Sjá nánar hér