Málþing Þroskaþjálfafélags Íslands -Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks - Vitundarvakning - horfum til framtíðar
Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks – Vitundarvakning – Horft til framtíðar.
Landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks markar tímamót þar sem nú er í fyrsta skipti sett fram heildstæð stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks á Íslandi. Efnið stendur þroskaþjálfum nærri en markmið áætlunarinnar er að fatlað fólk fái notið fullra mannréttinda og mannfrelsis til jafns við annað fólk þegar kemur að menntun, búsetu, atvinnu og sjálfstæðu lífi. En um hvað snýst þessi áætlun og hver eru næstu skref? Eins og segir í yfirskrift málþingsins þá er markmið þess að vekja fólk til vitundar, ekki aðeins um áætlunina sjálfa heldur einnig þau málefni sem þar um ræðir og skipta máli þegar kemur að því að stuðla að sjálfræði og fullgildri þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Á málþinginu munu fulltrúar ólíkra hagaðila sem og þroskaþjálfar, sem tóku þátt í vinnuhópum við gerð áætlunarinnar, fjallaum inntak áætlunarinnar og hvaða þýðingu hún hefur þegar horft er til framtíðar. Þá gefst gestum málþingsins jafnframt kostur á að eiga samtal við fyrirlesara um áætlunina í gegnum pallborðsumræður, en virkt samtal og samráð er mikilvægt til að stuðla að farsælli innleiðingu áætlunarinnar.
Staðsetning: Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52
Verð: kr. 15.000,-
Dagskrá:
Skráning: fer fram með hér. Staðfestingu á skráningu færðu um hæl í tölvupósti.
Skráningu lýkur þann 29. janúar á hádegi.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla þroskaþjálfa til að kynna sér inntak landsáætlunarinnar, óháð starfsvettvangi. Þroskaþjálfar hafa löngum verið ákveðið breytingarafl þegar kemur að því að stuðla að framförum í málefnum fatlaðs fólks – það eru því spennandi tímar framundan!
F.h. fagráðs
Ólöf Haflína Ingólfsdóttir