Atferlisráðgjafi eða þroskaþjálfi óskast í Vatnsendaskóla

Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með um 580 nemendur og 90 starfsmenn. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Áhersla er lögð á teymiskennslu, útikennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar.

Leitað er eftir háskólamenntuðum starfsmanni, til dæmis atferlisráðgjafa eða þroskaþjálfa skólaárið 2024-2025.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjálfun og utanumhald nemenda í sértæku úrræði.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Atferlisráðgjafamenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði.
  • Góð færni í að starfa í teymi.
  • Þolinmæði og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.