Öryggi og velferð skjólstæðinga geta verið í húfi
Öryggi og velferð skjólstæðinga geta verið í húfi
Að gefnu tilefni vill Bandalag háskólamanna koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:
Markmið laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn er að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur um menntun, kunnáttu og færni heilbrigðisstarfsmanna og starfshætti þeirra. Í lögunum eru tilgreindar samtals 33 löggiltar heilbrigðisstéttir, þar af eru allmargar innan aðildarfélaga BHM. Rétt til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar hefur eingöngu sá eða sú sem til þess hefur hlotið nauðsynlega menntun og þjálfun sem og starfsleyfi frá Embætti landlæknis. Einstakingur sem ekki hefur slíkt starfsleyfi má ekki veita sjúklingi meðferð sem fellur undir starfssvið löggiltrar heilbrigðisstéttar né veita faglega ráðgjöf.
Þegar einstaklingur notar starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar án þess að hafa tilskilda menntun og starfsleyfi, þá ber að líta það alvarlegum augum. Undir engum kringumstæðum er hægt að réttlæta slíkt enda geta öryggi og velferð sjúklinga eða skjólstæðinga verið í húfi. Það er skylda hagsmunaaðila og annarra að tilkynna slík brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn til Embættis landlæknis.
Löggiltar heilbrigðisstéttir samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn eru: 1. Áfengis- og vímuefnaráðgjafar. 2. Félagsráðgjafar. 3. Fótaaðgerðafræðingar. 4. Geislafræðingar. 5. Hjúkrunarfræðingar. 6. Hnykkjar (kírópraktorar). 7. Iðjuþjálfar. 8. Lífeindafræðingar. 9. Ljósmæður. 10.Lyfjafræðingar. 11. Lyfjatæknar. 12. Læknar. 13. Læknaritarar. 14. Matartæknar. 15. Matvælafræðingar. 16. Náttúrufræðingar í heilbrigðisþjónustu. 17. Næringarfræðingar. 8. Næringarráðgjafar. 19. Næringarrekstrarfræðingar. 20. Osteópatar. 21. Sálfræðingar. 22. Sjóntækjafræðingar. 23. Sjúkraflutningamenn 24. Sjúkraliðar. 25. Sjúkranuddarar. 26. Sjúkraþjálfarar. 27. Stoðtækjafræðingar. 28. Talmeinafræðingar. 29. Tannfræðingar. 30. Tannlæknar. 31. Tannsmiðir. 32. Tanntæknar. 33. Þroskaþjálfar.