Upplýsingar um greiningu, réttindi og þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra - allt á einum stað

Nú má finna á einum stað ítarlegar upplýsingar um greiningu, réttindi og þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Þetta vefsvæði, sem unnið er af Þroskahjálp markar tímamót í þjónustu við aðstandendur fatlaðra barna. Vefsvæðið kallast Fötluð börn og er undir Lífsviðburðir og má sjá hér.

Katarzyna Beata Kubiś, verkefnastjóri hjá Þroskahjálp hefur borið hitann og þungann af þessu verkefni. Þess má geta að hún er einnig þroskaþjálfi.
Frumkvæðið varð til hjá henni eftir að hafa þvælst um kerfið að leita að úrræðum fyrir son sinn. Hennar leiðarljós var að hafa allar upplýsingar á sama stað sem og að gera þjónustuna aðgengilega fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna. Á Island.is er verkefnið bæði á íslensku og ensku. Í næsta áfanga verkefnisins verða upplýsingarnar aðgengilegar á fleiri tungumálum og efninu miðlað á fjölbreyttan hátt.
Verkefnið er unnið af Þroskahjálp í samvinnu við Mennta- og barnamálaráðuneytið sem veitti styrk til þess árið 2023.