Umsjónarfélag einhverfra hlýtur ,,jólastyrkinn“ í ár

Stjórn Þroskaþjálfafélags Íslands samþykkti á fundi sínum þann 15. desember sl. að styrkja Umsjónarfélag einhverfra í stað þess að senda út jólakort. Félagið hefur undanfarin ár styrkt félagasamtök eða verkefni sem stuðla að fullri þátttöku fatlaðs fólks á eigin forsendum í samfélaginu.  Umsjónarfélag einhverfra hefur frá stofnun þess unnið árangursríkt starf í að bæta og standa vörð um mannréttindi fatlaðs fólks.