Til hamingju verðlaunahafar

Kærleikskúlan - Hvatningarverðlaun ÖBÍ og Múrbrjótur Landssamtakanna Þroskahjálpar  voru afhent á dögunum. Þessi verðlaun eru mikilvægur þáttur í  að vekja athygli á málefnum fatlaðs fólks og byggja upp jákvæð viðhorf samfélagsins í garð þeirra.
Þroskaþjálfafélag Íslands fagnar því sérstakleg hve margir þroskaþjálfar og þroskaþjálfanemar áttu aðild að verðlaunaverkefnunum og óskar þeim öllum innilega til hamingju.