Sjóðfélagar í Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM athugið!

Sjóðfélagar í Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM athugið!
 
Við minnum á að umsóknarfrestur vegna styrkja sem miðast við almanaksárið 2008 rennur út 9. desember n.k. 
 
ÁRÍÐANDI!  Vinsamlegast athugið að gögn vegna umsókna sem þegar hafa verið sendar og verða sendar fram að þeim tíma þurfa einnig að hafa skilað sér eða verið póstlögð í síðasta lagi þann 9. desember  svo hægt sé að greiða styrkina út á þessu almanaksári. - Það er ekki nóg að sækja um núna en senda gögnin eftir 9. desember.
 
Um er að ræða eftirfarandi styrki:

Styrktarsjóður (á eingöngu við opinbera markaðinn)  tannviðgerðarstyrk, smásjár- eða glasafrjóvgunarmeðferðir, líkamsræktarstyrk og meðferðarstyrk (styrkir til meðferða á líkama og sál).

Sjúkrasjóður (á eingöngu við um þá sem starfa á einkamarkaði) heilsuræktarstyrk/líkamsræktarstyrk, tannviðgerðarstyrk og styrki til meðferða á líkama og sál.

 
Aðrir styrkir úr sjóðunum eru ekki bundnir við útborgun pr. almanaksár.
 
Vinsamlega skilið inn umsóknum sem fyrst.