Opnir hádegisfundir fyrir félagsmenn með fulltrúum sjö stjórnmálasamtaka sem bjóða fram í komandi alþingiskosningum.
Í næstu viku efnir BHM til opinna hádegisfunda fyrir félagsmenn með fulltrúum sjö stjórnmálasamtaka sem bjóða fram í komandi alþingiskosningum. Markmiðið er að gefa flokkunum tækifæri til að kynna stefnu sína og áherslur í málefnum er varða hagsmuni háskólafólks sérstaklega og svara spurningum um þær. Fundirnir verða haldnir dagana 18., 19. og 20. október milli kl. 12:00 og 13:00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, 4. hæð.
Dagskráin er sem hér segir:
Þriðjudagur 18. október, 12:00–13:00
o Píratar
o Sjálfstæðisflokkurinn
Miðvikudagur 19. október, 12:00–13:00
o Framsóknarflokkurinn
o Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Fimmtudagur 20. október, 12:00–13:00
o Björt framtíð
o Samfylkingin
o Viðreisn
Vinsamlegast athugið að skrá þarf þátttöku fyrirfram á vef BHM (smellið hér).
Boðið verður upp á hádegissnarl.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundina.