Opið hús

Minni á ,,opna húsið“ á mánudaginn kemur kl 18 hér í Borgaratúni 6.  Jóhann Thoroddsen sálfræðingur ætlar þar að fjalla  og ræða um þætti sem mæta okkur á þrengingatímum.  Hvernig við getum byggt okkur upp fyrir okkur sjálf og þá sem standa næst okkur í lífi og starfi.  Látið þetta tækifæri til að eiga góða stund með kollegum  ekki fara framhjá ykkur.  Það væri gott að fá meldingu um það hvort þið ætlið að mæta.