Miðstjórn BHM ályktar um skattkerfisbreytingar og kjaraþróun

 

BHM lýsir áhyggjum af kjaraþróun fólks með meðalháar tekjur í yfirstandandi kjaraskerðingum og fyrirhugðum skattkerfisbreytingum, sem og breytingum á vaxta- og barnabótakerfunum.  Mikilvægt er að huga að jaðaráhrifum skattbreytinga og tekjutenginga.

BHM telur eðlilegt á aðhaldstímum að sérkjör einstakra hópa hvað varðar skattlagningu séu endurskoðuð og jafnræðis þannig gætt.    

BHM styður hækkun fjármagnstekjuskatts og leggur til að skattmeðferð fyrirtækja verði breytt á þann hátt að miðað verði við meðaltalsprósentu hjá OECD ríkjum (26,6% á móti 15% hér). 

Ennfremur hvetur BHM til þess að innheimta skatta verði efld og ráðist verði gegn tvöföldu skattkerfi sem viðgengst í landinu í tengslum við einkahlutafélög.