Gallerí BHM tekur til starfa

Sú nýbreytni er nú tekin upp hjá BHM og aðildarfélögum að bjóða listamönnum afnot af húsnæðinu í Borgartúni 6 til myndlistarsýninga. Ráðgert er að þrír til fjórir listamenn geti sýnt á hverju ári. Það er Sigríður Júlía Bjarnadóttir sem ríður á vaðið með sýningunni "Svipir" sem opnar föstudaginn 12. september og stendur til áramóta. Sigríður sýnir 13 verk sem unnin eru með bleki á pappír. Félagsmenn aðildarfélaga eru velkomnir á opnun sýningarinnar föstudaginn 12. september kl. 15-17. Nánari upplýsingar hér.