Frestur til að sækja um meistaranám að renna út
14.04.2009
Umsóknarfrestur um meistaranám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands rennur út á morgun, miðvikudaginn 15. apríl. Umsóknarfrestur um doktorsnám er til 22. apríl.
Í boði er fjölbreytt framhaldsnám í Kennaradeild, Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild og Uppeldis- og menntunarfræðideild.
Upplýsingar um hvernig sótt er um er að finna á vef Menntavísindasviðs www.mennta.hi.is
Í viðhengi eru bæklingur um meistaranám og auglýsing á meistara- og doktorsnámi við Menntavísindasvið.