Fangavaktin ályktun stjórnar Þ.Í.

Þroskaþjálfafélag Íslands vill koma á framfæri mótmælum og lýsa yfir vonbrigðum sínum til framleiðenda Fangavaktarinnar yfir þeirri neikvæðu ímynd og óvirðingu sem fólki með þroskahömlun var sýnd í 7. þætti sjónvarpsþáttaraðarinnar sem sýnd var á Stöð 2 sunnudaginn 8. nóvember s.l.

Að okkar mati er þetta atriði  niðurlægjandi og særandi fyrir fólk með þroskahömlun og aðstandendur þeirra. Það ýtir undir og viðheldur neikvæðri staðalímynd og umræðu í þjóðfélaginu sem þessi hópur hefur reynt að vinna gegn undanfarin ár. Í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem Ísland hefur undirritað, kemur skýrt fram að réttindi allra séu virt og allir njóti sömu virðingar. Þar er einnig fjallað um að bera skuli virðingu fyrir því að fólk er mismunandi, að berjast skuli gegn fordómum sem fatlað fólk verður fyrir, að breyta skuli viðhorfi barna og kenna þeim að bera virðingu fyrir réttindum fatlaðs fólks og ekki síst að hvetja skuli fjölmiðla til að fjalla um fatlað fólk með virðingu og á jákvæðan hátt. Fangavaktin er vinsæl þáttaröð og teljum við framleiðendur bera mikla ábyrgð á þeirri neikvæðu ímynd sem birtist í umræddum þætti í garð einstaklinga með þroskahömlun.