Viltu efla starfshæfni fatlaðs fólks?
Viltu efla starfshæfni fatlaðs fólks?
Ás styrktarfélag óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmanni við verkefni sem byggir á einkaleyfisskyldri aðferðarfræði, Project SEARCH.
Það felur í sér nám sem miðar að atvinnuþátttöku fatlaðs fólks á almennum vinnumarkaði með stuðningi og eftirfylgni í starfi.
Starfið er tímabundið til 5. júní 2025 með möguleika á áframhaldandi starfi og starfshlutfall er 100%.
Vinnutími á bilinu 8.00-16.00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 30. maí. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2024
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Kennsla í starfstengdu verknámi fyrir fatlað fólk sem nýtist í störfum á almennum vinnumarkaði
Hæfnikröfur:
- Menntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi frá landlækni
- Þekking og reynsla á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi hugmyndfræði
- Brennandi áhugi á atvinnuþátttöku fatlaðs fólks
- Þekking á vinnumarkaði er kostur
- Góð ensku- og íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð almenn tölvufærni og tölvulæsi er skilyrði
- Sjálfstæð vinnubrögð, samskipta- og samstarfsfærni
- Að minnsta kosti 3-5 ára starfsreynsla
- Þarf að geta unnið undir álagi og eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar
- Hreint sakarvottorð
Nánari upplýsingar veitir Valgerður Unnarsdóttir í síma 414-0500.
Upplýsingar um félagið má finna á www.styrktarfelag.is
Ás styrktarfélag hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt ÍST 85:2012.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.
Við hvetjum áhugasama að sækja um.