ÞÍ skrifar undir kjarasamning við ríkið
Samkomulag Þroskaþjálfafélags Íslands og Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs var undirritað rétt í þessu 19. desember 2024, með fyrirvara um samþykki félagsfólks. Samkomulagið felur í sér framlengingu á gildandi kjarasamningi til fjögurra ára. Samningurinn byggir á þeim hækkunum sem samið var um á almennum markaði í byrjun árs og 36 stunda vinnuvika er fest í sessi. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2024 sem tryggir leiðréttingu launa frá þeim tíma.
Félagsfólk sem starfar eftir þessum kjarasamningi hefur nú þegar fengið tölvupóst vegna þessa.