Breytt fyrirkomulag póstlista ÞÍ

Eins og fólk sér er póstlistinn horfinn hér af síðunni. Orsökin er sú að ÞÍ hefur nú um nokkuð skeið haft aðgang að fullkomnu póstkerfi innan BHM sem gefur félaginu ýmsa möguleika sem gamli listinn gat ekki. Þannig er t.d möguleiki á að senda ákveðnum markhópum póst í stað þess að senda öllum hópnum þegar við á.

Þeir þroskaþjálfar sem voru á gamla listanum þurfa ekki að örvænta um að fá ekki póst, því að félagið hefur allar skráningar sem voru á honum. En ef svo illa vildi til að þið fáið ekki póst á næstunni þá látið bara vita á throska@throska.is . Eins ef þið viljið breyta um tölvupóstfang.