Dagskrá á baráttudegi launafólks 1. maí

Bandalagið býður félögum að koma saman í anddyri Bíó Paradísar, mynda tengsl og gæða sér á hamborgurum frá Búllunni áður en haldið verður í kröfugöngu frá Skólavörðuholti.

Við opnum anddyri Bíó Paradísar upp úr kl. 11:00 og njótum þess að vera saman áður en haldið verður í göngu. Gengið verður frá Skólavörðuholti kl. 13:30 niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi þar sem hátíðardagskrá hefst kl. 14:00. Slagorð göngunnar í ár er „Sterk hreyfing, sterkt samfélag.“

Dagskrá

13:00

Safnast saman á Skólavörðuholti.

13:30

Gangan hefst og verður gengið niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi.

Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á lngólfstorg.

14:00

Útifundur hefst. Fundarstjóri er Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar.

Ræðu flytja Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis.

Bríet og Úlfur Úlfur munu taka lagið og í lok fundarins syngur fundarfólk og tónlistarfólk saman lnternationallinn og Maístjörnuna.

- Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, KÍ og BHM