Alþjóðlegur dagur þroskaþjálfa 2. október 2023

Til hamingju með daginn!
 
Í dag, 2. október er alþjóðlegur dagur þroskaþjálfa. Á þessum degi minna þroskaþjálfar á störf sín um allan heim. Þroskaþjálfar hafa kunnáttu og þekkingu til að veita fötluðum og öðrum sem hafa skerta færni þann stuðning sem fólk þarfnast. Reynslan sýnir að þroskaþjálfar hafa mikilvægu hlutverki að gegna og þjóna fjölbreyttum hópum í samfélaginu.
Víða í heiminum er fátækt, stríðsástand og ofbeldi er áberandi í lífi fólks. Þjóðfélagsástand er óstöðugt og fjöldi fólks á flótta. Þroskaþjálfar beita sér til að mynda fyrir félagslegum stuðningi við börn sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar. Höfum aðstæður þessara barna í huga þegar deginum er fagnað jafnframt því vekja athygli á störfum þroskaþjálfa hér heima á Íslandi

Dagana 19.–22.maí 2025 fer fram heimsráðstefna á vegum AIEJI og verða gestgjafarnir socialpædagogerne í Danmörku. Ráðstefnan fer fram í Kaupmannahöfn og er þemað "Social Educators Change Lives”.
Búist er við um um 600 þátttakendum frá fleiria en 40 löndum og gaman væri að fjölmenna frá Íslandi. Skráning hefst í dag 2. október 2024. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar: www.aieji2025.com
Fjölmargir alþjóðlegir sérfræðingar á sviði þroskaþjálfafræða munu vera með erindi.

Að auki verða þrjár umferðir af vinnustofum þar sem þroskaþjálfar og annað fagfólk geta deilt þekkingu og reynslu með fólki frá öllum heimshornum. Þessar vinnustofur eru hugsaðar þannig að þátttakendur geta rætt, skipst á skoðunum eða tekið þátt í öðrum virkum verkefnum.
Þau sem hafa áhuga á að halda vinnustofu geta sent inn yfirlit (abstract) fyrir 1. febrúar 2025. Allar umsóknir verða skoðaðar af dagskrárnefnd ráðstefnunnar, og svar verður veitt eigi síðar en 1. mars 2025. Nánari upplýsingar um abstracts er að finna hér https://aieji2025.com/en/call-forabstracts/.
 
Einn dagur ráðstefnunnar er sérstaklega helgaður heimsóknum á vinnustaði. Þessar heimsóknir veita þátttakendum einstakt tækifæri til að kynnast vinnuaðferðum og leiðum sem notaðar eru á dönskum socialpædagogiske vinnustöðum sem starfa með viðkvæma hópa. Hver þátttakandi hefur val um heimsókn á tvo vinnustaði.

Hlökkum til spennandi heimsráðstefnu fulla af faglegum innblæstri og nýjum sjónarhornum.
Velkomin til Kaupmannahafnar í maí 2025!