Aðalfundur Þroskaþjálfafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 23. maí
28.04.2023
Þroskaþjálfafélag Íslands heldur aðlfund þriðjudgainn 23. maí næstkomandi. Boðið verður upp á að mæta í Borgartún 6, 3. hæð og að vera á fjarfundi.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf en þau eru:
- a) kosnir starfsmenn fundarins
- b) formaður leggur fram skýrslu stjórnar
- c) gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til afgreiðslu og gerir grein fyrir fjárhag þess
- d) lagabreytingar
- e) kosning í stjórn, nefndir og ráð
- f) kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara
- g) lögð fram fjárhagsáætlun næsta árs og félagsgjöld ákveðin
- h) önnur mál
Félagsfólk þarf að skrá sig á fundinn hér.
Aðalfundargögn er hægt að sjá hér.
Hlökkum til að sjá ykkur!