Aðalfundur ÞÍ verður haldinn miðvikudaginn 14. maí

Aðalfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. maí klukkan16:30, í Borgartúni 27 á 2. hæð. Einnig verður boðið upp á að taka þátt áfjarfundi í gegnum teams.
Nauðsynlegt er að skrá sig hvort sem þú mætir í Borgartún eða skráir þig á fjarfund.
Skráning fer fram hér. Fjarfundarboð verður sent á skráð netfang fyrir hádegi á aðalfundardegi.

Hér er tengill á tillögur kjörnefndar í stjórn, ráð og nefndir. Önnur fundargögn munu birtast á sama tengli þegar á líður.

Nú ber svo við að kjósa þarf á milli tveggja í varaformann stjórnar ÞÍ. Þroskaþjálfarnir Auður Björk Kvaran og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir bjóða sig fram, kynningarbréf þeirra er hægt að lesa með því að smella á nöfn þeirra.

Kosning verður rafræn og fer hún fram í viku fyrir aðalfund. Kosning hefst þann 7. maí klukkan 12 og lýkur þann 14. klukkan 12. Niðurstaða varaformannskjörs verður kynnt á aðalfundi.

Lögboðin dagskrá er eftirfarandi:

  • Kosnnir starfsmenn fundarins
  • Formaður leggur fram skýrslu stjórnar
  • Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til afgreiðslu og gerir grein fyrir fjárhag þess
  • Lagabreytingar
  • Kosning í stjórn, nefndir og ráð
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara
  • Lögð fram fjárhagsáætlun næsta árs og félagsgjöd ákveðin
  • Önnur mál

Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og notalegt spjall á staðnum. Skálað verður fyrir starfi og sögu félagsins - tímamót sem vert er að fagna. Hljómsveitin Eva mun leika nokkur lög við hátíðlega 60 ára afmælisstemningu.

Með kveðju, stjórn ÞÍ