Aðalfundur ÞÍ
Aðalfundur Þroskaþjálfafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 28. apríl n.k. og hefst klukkan 17.00 í Borgartúni 6.
Dagskrá:
• Kosnir starfsmenn fundarins
• Formaður leggur fram skýrslu stjórnar
• Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til afgreiðslu og gerir grein fyrir fjárhag þess
• Lagabreytingar
• Kosning í stjórn, nefndir og ráð
• Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara
• Lögð fram fjárhagsáætlun næsta árs og félagsgjöld ákveðin
• Önnur mál