6. febrúar dagur leikskólanna

 

Á leikskólum fer fram metnaðarfullt og faglegt starf með umhyggju og velferð allra barna að leiðarljósi. Þar hefur skóli án aðgreiningar fest sig í sessi. Þar er boðið góðan dag - alla daga. Við óskum starfsmönnum leikskóla, leikskólabörnum og foreldrum þeirra til hamingju með daginn og bjóðum þeim góðan dag - alla daga!