Hefur þú brennandi áhuga á farsæld barna?

Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum og skapandi einstaklingi í starf sérfræðings vegna verkefna tengdum samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Um er að ræða 100% starf á farsældarsviði sem heyrir undir framkvæmdastjóra sviðsins. Starfsstöð er á höfuðborgarsvæðinu. Farsældarsvið gegnir lykilhlutverki við innleiðingu samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna, m.a. stýrir og skipuleggur ráðgjöf og fræðslu vegna innleiðingarinnar. Sviðið styður við störf tengiliða farsældar í leik-, grunn- og framhaldsskólum og á heilsugæslum ásamt því að styðja við málstjóra farsældar í félagsþjónustu og barnavernd og vinnu stuðningsteyma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf fyrir þjónustuveitendur sem vinna með börnum og fjölskyldum.
  • Ráðgjöf, handleiðsla og fræðsla fyrir tengiliði, málstjóra og stuðningsteymi.
  • Aðstoð við innleiðingu samþættingar fyrir sveitarfélög og ríkisstofnanir.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking á lögum nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Reynsla og þekking á starfi barnaverndar-, félags-, heilbrigðis- og/eða skólaþjónustu.
  • Reynsla af málstjórn og þverfaglegu samstarfi kostur.
  • Reynsla af vinnu með fjölbreyttan vanda foreldra og barna kostur.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Íþróttastyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar

 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofan aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur alla til að sækja um, óháð kyni.

Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Starfshlutfall: 100%

Umsóknarfrestur er til og með 6. september nk.

Umsókn á www.starfatorg.is

Nánari upplýsingar veitir

Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs í síma 530 2600 eða pall.olafsson@bofs.is.