Siðaregla númer 11
Þroskaþjálfi skal stuðla að góðum samskiptum og samvinnu við aðra sérfræðinga, stofnanir og tengslanet. Mismunandi skoðanir og siðferðileg álitamál skal ræða að viðstöddum þeim sem málið varðar á hreinskiptinn og lýðræðislegan hátt.